Opinn kynningarfundur vegna nýs deiliskipulags miðsvæðis á Hellissandi
19.02.2024 |
Fréttir, Skipulagsmál
Opinn kynningarfundur vegna nýs deiliskipulags fyrir stækkun hótels á Hellissandi verður haldinn þriðjudaginn 5. mars 2024 kl. 16:00 í Félagsheimilinu Röst.
Pétur Bolli Jóhannesson og Pálmar Harðarson frá Þingvangi kynna verkefnið.
Nánar má lesa um deiliskipulagið í frétt frá 15. febrúar 2024 og hægt er að nálgast öll gögn á Skipulagsgátt.
Öll velkomin og áhugasöm hvött til að mæta á kynningarfundinn.