Opinn kynningarfundur vegna skipulagsbreytinga í Ólafsvík

Opinn kynningarfundur vegna lýsingar og matslýsingar er snýr að skipulagsbreytingum í Ólafsvík.

Opinn kynningarfundur vegna breytinga á aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015 – 2031 í Ólafsvík og nýs deiliskipulags austast í Ólafsvík verður haldinn fimmtudaginn 10. október 2024 kl. 17:00 í sal á efri hæð Félagsheimilisins Klifi, Ólafsvík.

Gunnþóra Guðmundsdóttir frá Urban Arkitektar kynnir verkefnið.

Nálgast má lýsingu og matslýsingu á Skipulagsgátt.

Hagsmunaaðilar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta á kynningarfundinn.