Opnun tilboða í jarðvinnu vegna Þjóðgarðsmiðstöðvar
26.02.2019 |
Fréttir
Í dag voru opnuð tilboð í jarðvinnu vegna Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi. Þrjú tilboð bárust í verkið, öll frá fyrirtækjum héðan úr Snæfellsbæ. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 27.254.000.-
Eftirtaldir aðilar sendu inn tilboð:
- Stafnafell ehf. Tilboð hljóðar upp á kr. 14.954.250.-
- TS Vélaleiga ehf. Tilboð hljóðar upp á kr. 23.544.151.-
- B. Vigfússon ehf. Tilboð hljóðar upp á kr. 25.549.700.-
Tilboðin liggja nú á borði Ríkiskaupa sem tekur þau fyrir. Stefnt var að því að vinna hæfist í byrjun mars 2019 og yrði lokið um miðjan maí.