Opnunartímar stofnana yfir páskahátíðina

Opnunartímar í stofnunum Snæfellsbæjar verða sem hér segir yfir páskahátíðina. Einnig má sjá opnunartíma Terra umhverfisþjónustu, en opið verður á starfsstöðinni þeirra undir Enni á laugardag.

Sérstök athygli vakin á því að sundlaugin í Ólafsvík verður áfram lokuð skv. tilmælum frá embætti landlæknis.

Opnunartímar: Bæjarskrifstofa

Lokað á rauðum dögum: Skírdag, Föstudaginn langa og annan í páskum. Opnar þriðjudaginn 23. apríl. 

Grunnskóli Snæfellsbæjar

Páskafrí til og með 13. apríl. Kennsla hefst aftur að morgni þriðjudags 14. apríl.

Leikskóli Snæfellsbæjar

Lokað á rauðum dögum: Skírdag, Föstudaginn langa og annan í páskum. Kennsla hefst aftur að morgni þriðjudags 14. apríl. 

Bókasafn Snæfellsbæjar

Lokað á rauðum dögum. Opnar að nýju kl. 10 þriðjudaginn 14. apríl.

Terra umhverfisþjónusta

Lokað á fimmtudag, Skírdag.

Opið frá kl. 11:00 – 15:00 laugardaginn 11. apríl.

Opnar svo skv. áætlun kl. 15:00 á þriðjudag, 14. apríl.

-

Lokað verður alla helgina í sundlauginni í Ólafsvík, upplýsingamiðstöð ferðamanna í Átthagastofu og safni á efri hæðum í Pakkhúsinu.