Örstyrkir til menningarverkefna í Snæfellsbæ

Menningarnefnd Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarverkefna í Snæfellsbæ árið 2024.

Veittir verða styrkir til tónleikahalds, listasýninga, útgáfu eða annarra verkefna sem styðja við lista- og menningarlíf í Snæfellsbæ, íbúum til heilla.

Umsóknir sendist á netfangið menningarnefnd@snb.is.

Umsóknarfrestur er til 5. mars 2024.