Óskað eftir athugasemdum um framtíð Breiðafjarðar

Breiðafjarðarnefnd hefur unnið að verkefni sem gengið hefur undir nafninu „Framtíð Breiðafjarðar“ síðan 2019. Nú liggur fyrir samantekt nefndarinnar á framvindu og niðurstöðum verkefnisins.

Breiðafjarðarnefnd hefur sent samantektina til umsagnar sveitarstjórna við fjörðinn. Samantektin er auk þess birt á heimasíðu nefndarinnar og óskað eftir athugasemdum íbúa. Eru íbúar hvattir til að kynna sér málið og koma með athugasemdir. Athugasemdum skal skil á netfangið breidafjordur@nsv.is. Móttaka athugasemda verður staðfest með tölvupósti. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 19. desember 2020.

Að umsagnarfresti liðnum verður lokahönd lögð á samantektina og umsagnir sveitarstjórna og athugasemdir íbúa birtar í sérstökum kafla aftast í samantektinni. Athugið að athugasemdir verða birtar undir nafni. Lokaútgáfu samantektarinnar, ásamt niðurstöðum nefndarinnar, verður loks skilað til umhverfisráðherra sem svo tekur ákvörðun um næstu skref.