Óskað eftir leikskólakennara á yngstu barna deildina á Kríubóli

Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa á yngstu deildina á Kríubóli. Um tímabundið 100% starf til eins árs er að ræða frá ágústmánuði.

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Leyfisbréf kennara, lög nr. 95/2019 og eða
  • Leikskólakennararéttindi

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður.

Viðkomandi þarf að búa yfir:
  • Góðri íslenskukunnáttu
  • Áhuga, reynslu og hæfni í starfi með börnum
  • Góðum samskiptahæfileikum
  • Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja
  • Góðri færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Hreinu sakarvottorði
Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2021. Umsóknareyðublað skal senda á netfang leikskólans, leikskolar@snb.is, til staðfestingar á umsókn um starfið. Varðandi þær umsóknir sem liggja fyrir er viðkomandi beðinn um að staðfesta þær með tölvupósti á sama netfang.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og starfið hentar öllum kynjum.

Nánari upplýsingar veita Hermína K. Lárusdóttir og Linda Rut Svansdóttir í síma 433 6926 á milli kl. 9-14 alla virka daga eða á netfanginu leikskolar@snb.is.