Óskað eftir tillögum að jóla- og piparkökuhúsi ársins 2019
16.12.2019 |
Fréttir
Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskar eftir tillögum frá íbúum um fallega skreytt jólahús í Snæfellsbæ og flottasta piparkökuhúsið (þau eru númeruð og til sýnis í Kassanum í Ólafsvík).
Opið verður fyrir innsendar tillögur til miðnættis fimmtudaginn 19. desember 2019.
Að þeim tíma loknum fer menningarnefnd yfir niðurstöður og kynnir sigurvegara úr báðum flokkum við hátíðlega athöfn í Átthagastofu Snæfellsbæjar sunnudaginn 22. desember kl. 16:30.
Farið verður með aðsendar upplýsingar sem trúnaðarmál og ekki verður hægt að persónugreina innsendar tillögur. Athugið að það er ekki hægt að kjósa oftar en einu sinni í hverju tæki.