Óskað eftir umsóknum í vinnuskóla sumarið 2022
Snæfellsbær óskar eftir umsóknum um störf í skemmtilegri og lærdómsríkri sumarvinnu við vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2022.
Vinnuskólinn verður starfræktur frá 9. júní til 23. júlí.
Nemendur í 8. bekk starfa í fjórar vikur, frá 9. júní til 8. júlí.
Nemendur í 9. og 10. bekk starfa í sex vikur, frá 9. júní til 22. júlí.
Unglingar fæddir 2005 geta einnig sótt um í vinnuskólanum, og vinna þeir sama tímabil og nemendur í 9. og 10. bekk.
Daglegur vinnutími nemenda í 8. bekk er frá frá kl. 8:00 - 12:00.
Daglegur vinnutími nemenda í 9. og 10. bekk og hjá árgangi 2005 er frá kl. 8:00 - 16:35 með hádegismat nema á föstudögum, þegar unnið er til kl. 12:00.
Athugið: Nemendur í 10. bekk og árgangur 2005 þurfa að skila rafrænum persónuafslætti og greiða í lífeyrissjóð. Iðgjöld reiknast frá næstu mánaðarmótum eftir 16 ára afmælisdag.
- Ólafsvík – Áhaldahús Snæfellsbæjar
- Hellissandur – rúta fer frá Grunnskólanum á Hellissandi
- Rif – rúta fer frá strætóskýlinu efst í Háarifi
- Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.
- Sýna skal flokkstjórum kurteisi.
- Einelti er ekki liðið.
- Notkun tóbaks er bönnuð. Reykingar, munntóbak, vape og önnur vímuefni.
- Notkun farsíma er bönnuð enda er ekki tekin ábyrgð á þeim á vinnutíma.
- Öll forföll þarf að tilkynna til verkstjóra.
- Leggja þarf til allan vinnufatnað og galla en vinnuskóli leggur til öryggisvesti.
- Ætlast er til að krakkar mæti með nesti. Ekki er leyft að yfirgefa vinnustað í pásum.
- Klæðnaður skal hæfa veðri og eðli vinnunnar.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 23. maí.
Umsóknareyðublað er hægt að nálgast í Ráðhúsi Snæfellsbæjar eða hér að neðan.
Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn á byggingarfulltrui@snb.is eða skila henni í Ráðhús Snæfellsbæjar. Nánar: