Ráðstefna um málefni og sameiningar sveitarfélaga
16.10.2023 |
Fréttir
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi blása til ráðstefnu um málefni sveitarfélaga.
Kl. 10:00 Sameiningar sveitarfélaga
- Hermann Sæmundsson ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytinu
- Róbert Ragnarsson ráðgjafi KPMG – Sameining sveitarfélaga, stefna og framkvæmd
- Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri Húnaþingi vestra – Hvenær er rétti tíminn til að sameina sveitarfélög ?
- Björn Ingimarsson bæjarstjóri Múlaþingi – Sameining sveitarfélaga í Múlaþingi
- Vífill Karlsson ráðgjafi hjá SSV og prófessor við Háskólann á Bifröst – Áhrif sameiningar sveitarfélaga á þjónustu við íbúa
- Umræður
12:30 Hádegisverður
13:15 Aðdráttarafl sveitarfélaga
- Heiða Björk Hilmisdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Ágúst Bogason sérfræðingur hjá Nordregio – Aðdráttarafl smærri sveitarfélaga á Norðurlöndunum, fjárfestingar í náttúru-, menningar- og félagsauði
- Bjarki Þór Grönfeldt lektor við Háskólann á Bifröst – Hvernig geta íslensk sveitarfélög aukið aðdráttarafl sitt
- Dennis Holm sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi bæjarstjóri í Vági í Færeyjum – Reynslusaga frá Vági
- Umræður
Ráðstefnan verður haldin í Breið – nýsköpunar og þróunarsetur, Bárugata 8-10, Akranesi.
Ráðstefnustjóri Guðveig Lind Eyglóardóttir formaður SSV.