Rafræn könnun um dagskrá heilsuviku Snæfellsbæjar
30.08.2021 |
Fréttir
Stefnt er að því að halda Heilsuviku Snæfellsbæjar nú á haustmánuðum ef aðstæður í samfélaginu bjóða upp á það. Íþrótta- og æskulýðsnefnd Snæfellsbæjar óskar því eftir tillögum frá íbúum um skemmtilega og fræðandi viðburði sem hægt væri hugsanlega hægt að bjóða upp á skipulagðri dagskrá.
Íbúar og áhugasamir hvattir til að taka þátt í könnuninni, hún er örstutt og ætti ekki að taka nema 1-2 mínútur að ljúka henni.
Íbúar geta opnað þessa könnun og sent inn sínar tillögur.Einnig er hægt að taka mynd af QR-kóðanum hér að neðan og opna könnuna í símanum.