Réttir í Snæfellsbæ haustið 2020

Nú þegar farið er að hausta er kominn tími á göngur og réttir hjá sauðfjárbændum landsins. Í Snæfellsbæ verður réttað laugardagana 19. og 26. september.

Réttir verða ekki með hefðbundnu sniði sökum COVID-19. Aðeins þeir sem hafa hlutverk í göngur og réttir er heimilt að mæta og gestir ekki velkomnir í ár. Þessar ráðstafanir eru komnar til vegna 200 manna hámarksreglu en börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkun. Þá eru þátttakendur beðnir að virða 1 kinda regluna og hlaða niður smitrakningarappi almannavarna.

Samkvæmt upplýsingum frá landbúnaðar- og fjallaskilanefnd Snæfellsbæjar verða réttir í Snæfellsbæ haustið 2020 sem hér segir:

Laugardaginn 19. september 2020
  • Fróðárrétt í Fróðárhreppi,
  • Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík,
  • Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi,
Laugardaginn 26. september 2020
  • Ölkeldurétt í Staðarsveit,
  • Bláfeldarrétt í Staðarsveit,
  • Grafarrétt í Breiðuvík,
  • Klofningsrétt í Breiðuvík