Réttir í Snæfellsbæ haustið 2022

Nú þegar farið er að hausta er kominn tími á göngur og réttir hjá sauðfjárbændum landsins. Í Snæfellsbæ verður réttað laugardagana 17. og 24. september.

Samkvæmt upplýsingum frá landbúnaðar- og fjallaskilanefnd Snæfellsbæjar verða réttir í Snæfellsbæ haustið 2022 sem hér segir:

Laugardaginn 17. september 2022
  • Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík,
  • Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi
Laugardaginn 24. september 2022
  • Ölkeldurétt í Staðarsveit,
  • Bláfeldarrétt í Staðarsveit,
  • Grafarrétt í Breiðuvík