Réttir í Snæfellsbæ 16. og 23. september

Nú þegar farið er að hausta er kominn tími á göngur og réttir hjá sauðfjárbændum landsins. Í Snæfellsbæ verður réttað laugardagana 16. og 23. september. Samkvæmt upplýsingum frá landbúnaðar- og fjallaskilanefnd Snæfellsbæjar verða réttir í Snæfellsbæ haustið 2023 sem hér segir:

Laugardaginn 16. september 2022

  • Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík,
  • Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi

Laugardaginn 23. september 2023

  • Ölkeldurétt í Staðarsveit,
  • Bláfeldarrétt í Staðarsveit,
  • Grafarrétt í Breiðuvík.