Röð kynningarfunda um Nýsköpunarnet Vesturlands
07.09.2021 |
Fréttir
Undanfarna mánuði hefur staðið yfir undirbúningur að stofnun Nýsköpunarnets Vesturlands (NÝVEST). Markmiðið með stofnun netsins er að tengja saman alla sem vilja vinna að nýsköpun á Vesturlandi, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Dagana 13., 15. og 16. september verður farið vítt og breytt um Vesturland til að kynna hugmyndina að stofnun NÝVEST.
Kynningarfundir verða á eftirtöldum stöðum:- Akranes Breið (HB húsið) mánudaginn 13. september kl. 12:00
- Búðardalur Vínlandssetrið miðvikudaginn 15. september kl. 12:00
- Borgarnes Hjálmaklettur (MB) miðvikudaginn 15. september kl. 16:00
- Hellissandur Röstin fimmtudaginn 16. september kl. 12:00
- Stykkishólmur Árnasetur fimmtudaginn 16. september kl. 12:00
- Grundarfjörður Sögumiðstöðin fimmtudaginn 16. september kl. 16:00
Áhugasamir um nýsköpun á Vesturlandi eru hvattir til að mæta á fundina.