Sálfræðingur óskast til starfa hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga bs., auglýsir 100 % stöðugildi sálfræðings skóla- og félagsþjónustu en einnig kæmi til greina 2 x 50% stöðugildi 2ja sálfræðinga er hefðu með sér samvinnu um framkvæmd starfs.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Frumgreiningar, skimanir og mat á líðan nemenda nemenda grunn- og leikskóla
  • Almenn ráðgjöf og leiðsögn um sértæk úrræði til starfsfólks skóla og foreldra.
  • Tilfallandi ráðgjöf til starfsmanna barnaverndarþjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og réttindi til starfa sem sálfræðingur á Íslandi..
  • Þekking og reynsla af beitingu frumgreininga og skimana
  • Samskipta- og skipulagshæfni.
  • Góð færni í íslensku máli, jafnt ræðu sem riti.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2023.

Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila berist undirrituðum er veitir frekari upplýsingar.

Sveinn Þór Elínbergsson, forstöðumaður félags- og skólaþjónustu Snæfellinga; símanúmer 430 7800, netfang sveinn@fssf.is.