Samra Begic er fjallkona Snæfellsbæjar árið 2020

Fjallkona Snæfellsbæjar árið 2020 er Samra Begic.

Hún steig á svið við hátíðlega athöfn í Sjómannagarðinum í Ólafsvík í dag og flutti ljóð Einars Benediktssonar, Til fánans, í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní.

---

Rís þú, unga Íslands merki, upp með þúsund radda brag. Tengdu í oss að einu verki anda, kraft og hjartalag, Rís þú Íslands stóri, sterki stofn með nýjan frægðardag. Hvort skal nokkur banna og bjóða börnum frjálsum þessa lands og til vorra ættarslóða augum líta ræningjans? Fylkjum oss í flokki þjóða. Fram, að lögum guðs og manns. Gætum hólmans. Vofi valur víðskyggn yfir storð og hlé. Enginn fjörður, enginn dalur auga hauksins gleymdur sé. Vakið, vakið, hrund og halur, heilög geymið Íslands vé. Storma og ánauð stóðst vor andi stöðugur sem hamraberg. Breytinganna straum hann standi sterkur, nýr á gömlum merg. Heimur skal hér líta í landi lifna risa fyrir dverg. Skín þú, fáni, eynni yfir eins og mjöll í fjallahlíð. Fangamerkið fast þú skrifir fólks í hjartað ár og síð. Munist hvar sem landinn lifir litir þína alla tíð. Hvert eitt landsins fley, sem flýtur, fáni vor, þig beri hátt. Hvert þess barn, er ljósið lítur, lífgar vonir sem þú átt. Hvert þess líf, sem þverr og þrýtur, þínum hjúp þú vefja mátt. Meðan sumarsólir bræða svellin vetra um engi og tún skal vor ást til Íslands glæða afl vort undir krossins rún, djúp sem blámi himinhæða, hrein sem jökultindsins brún.