Samráðsfundur með íbúum Vesturlands um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál
19.10.2022 |
Fréttir
Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fundur fyrir íbúa Vesturlands verður haldinn miðvikudaginn 26. október kl. 15-17.
Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.
Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum og eru íbúar hvattir til þátttöku. Fundurinn er haldinn í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams og er krafist skráningar á fundinn. Skráningu lýkur daginn fyrir fund og þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengjast fundinum.Fundardagar:
- 10. október – Höfuðborgarsvæðið
- 11. október – Suðurland
- 18. október – Austurland
- 19. október – Norðurland eystra
- 20. október – Norðurland vestra
- 24. október – Vestfirðir
- 26. október – Vesturland
- 27. október – Suðurnes