Samráðsfundur um stöðu samgöngumála á Vesturlandi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Vesturlandi miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00-17:00.

Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku á skráningarsíðu fundarins. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.

SKRÁNING HÉR Þeir sem skrá sig fá sendan hlekk á veffundinn. Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála. Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál.
Dagskrá:

15:00–16:00 Erindi

Lilja B. Ágústsdóttir, formaður SSV og forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð

Gísli Gíslason, fv. hafnarstjóri Faxaflóahafna, Akranesi

Sigríður Huld Skúladóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Dalabyggð

Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi

16:00–17:00 Umræður

Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.
Fundarstjóri er Gissur Jónsson, varaformaður samgönguráðs.