Samvera er besta forvörnin

Sumarið er tími tækifæra fyrir fjölskylduna að verja meiri tíma saman og safna góðum minningum.

Niðurstöður rannsókna sýna að börn og unglingar sem verja tíma með foreldrum sínum eru síður líklegir til að sýna ýmis konar áhættuhegðun og viljum við því taka upp erindi frá SAMAN-hópnum og hvetja foreldra og forráðamenn til að verja tíma með börnum sínum. Samvera er besta forvörnin.

Fjölskyldur geta fengist við ýmislegt sem þarf ekki að kosta mikið eða jafnvel ekki neitt og viðfangsefnin þurfa jafnframt ekki að vera flókin; aðalmálið er að fjölga samverustundum, taka þátt í leik með börnunum og hafa gaman saman.

Jafnframt eru samræður foreldra og barna og unglinga mikilvægur þáttur þar sem foreldrar og börn ræða sjónarmið sín og hugmyndir.

Gefum okkur tíma til að safna góðum fjölskylduminningum í sumar.

Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að börn og unglingar foreldra sem beita ákveðnum aðferðum í uppeldi, svokölluðum leiðandi uppeldisháttum, sýna síður merki um þunglyndi, kvíða og áhættuhegðun, s.s. vímuefnaneyslu og afbrotahneigð. Leiðandi uppeldi ýtir jafnframt undir þroska, virkni, sjálfstæði, sjálfsaga og sjálfstraust hjá börnum og unglingum. Það sem einkennir leiðandi foreldra er að þeir krefjast þroskaðrar hegðunar af börnum sínum og unglingum, sýna mikla umhyggju en setja um leið skýr mörk.

Foreldrar eru einnig bestu lestrarfyrirmyndir barna sinna svo við hvetjum til þess að öll fjölskyldan lesi saman. Benda má á Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar sem inniheldur 31 skemmtilega leið að lestri.  Dagatölin hafa einnig verið gefin út á ensku og pólsku. Dagatölin eru öll til án texta þannig að hægt er að fylla inn í þau með eigin hugmyndum. 

Hér má finna fróðleik sem gagnast foreldrum við læsisuppeldi:

Gleðilegt samveru og lestrarsumar!