Seinkun á sorphirðu í vikunni

Seinkun verður á sorphirðu í Snæfellsbæ í þessari viku skv. tilkynningu frá Terra. Skv. sorphirðudagatali á að hirða sorp í Ólafsvík í dag, fimmtudaginn 1. desember, en því seinkar um tvo daga.

Beðist er velvirðingar á þessari töf.

Sorp í Snæfellsbæ er hirt u.þ.b. tvisvar í mánuði og er endurvinnslutunnan tæmd á sama tíma. Bæjarbúar eru eindregið hvattir til þess að flokka allt rusl og hafa gott aðgengi að tunnum.