Sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkur til barna frá tekjulágum heimilum
Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 faraldursins er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005 - 2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr á mánuði á tímabilinu mars - júlí 2020.
Styrkurinn er allt að 45.000 kr fyrir hvert barn og kemur til viðbótar við hefðbundinn frístundastyrk Snæfellsbæjar.
Á barnið þitt rétt á styrk? Kannaðu málið á Island.isStyrkina er hægt er að nota til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.
Umsóknir Allar umsóknir þurfa að berast Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fyrir 15. apríl 2021 á skrifstofu við Klettsbúð 4 á Hellissandi eða á netfangið: fssf@fssf.is Upplýsingar á fleiri tungumálum ENSKA: Grants for sports and leisure activities POLSKA: Dofinansowanie do zajęć sportowych i rekreacyjnych Önnur tungumál