Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stelpur
24.04.2019 |
Fréttir
Kristín Tómasdóttir kemur til Snæfellsbæjar og heldur sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 7 - 12 ára stelpur. Byggir hún námskeiðið á bók sinni Sterkar stelpur sem kom út árið 2017. Námskeiðið verður haldið helgina 4. - 5. maí 2019 í íþróttahúsi Snæfellsbæjar.
- Yngri hópur: 7 - 9 ára milli klukkan 09.00 - 11.00 báða dagana.
- Eldri hópur: 10 - 12 ára milli klukkan 12.00 - 14.00 báða dagana.
Í lok námskeiðsins er foreldrum boðið á fund þar sem farið verður yfir góð ráð til þess að fylgja námskeiðinu eftir. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á þrennt:
- Að þátttakandinn læri að þekkja hugtakið sjálfsmynd.
- Að þátttakandinn læri að þekkja sína eigin sjálfsmynd.
- Að þátttakandinn læri leiðir til þess að fyrirbyggja að sjálfsmyndin þróist í neikvæða átt.