Sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Sjómannadagurinn var að venju haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ um helgina og sjómenn heiðraðir fyrir störf sín í gegnum tíðina.
Heiðrunin fór fram í sjómannagörðum sveitarfélagsins; í Sjómannagarðinum í Ólafsvík voru Sigurður Höskuldsson og Björn Erlingur Jónasson heiðraðir en þeir hafa báðir verið til sjós í nær 50 ár og skipsverjar í 38 ár á Ólafi Bjarnasyni SH-137.
Í Sjómannagarðinum á Hellissandi var það Kristján Jóhannes Karlsson sem var heiðraður. Kristján er nýhættur til sjós eftir að hafa verið vélstjóri á ýmsum bátum í rúma hálfa öld, fyrst á Sveinbirni Jakobssyni SH-10 og síðar öðrum bátum.
Lesin voru ágrip um heiðurssjómennina áður en þeir fengu heiðursmerki í barminn og fallegan blómvönd. Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru við þetta tilefni.Björn Erlingur Jónasson og Sigurður Höskuldsson voru heiðraðir í Ólafsvík. Hér eru þeir með eiginkonum sínum Kristínu Vigfúsdóttur og Guðmundu Wiium.
Myndir: Alfons Finnsson og úr einkasafni.