Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2018
30.05.2018 |
Fréttir
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður í Ólafsvík 2. júní n.k. og hlaupið verður frá Sjómannagarðinum kl. 11:00.
Í boði eru tvær vegalengdir,
2,5 km. og 5 km.
Ekki þarf að skrá sig í hlaupið en forsala fer fram í sundlauginni. Þátttökugjald fyrir
12 ára og yngri
er 1.000 kr. og fyrir
13 ára og eldri er gjaldið 2.000 kr.
Kvennahlaupsbolur og buff fylgja þátttökugjaldi og einnig verður frítt í sund að hlaupi loknu. Að auki verður
ávaxtaveisla í boði eftir hlaup og glæsilegir happdrættisvinningar dregnir út.