Skólaganga barna á tímum COVID-19 faraldurs

Landlæknir og sóttvarnalæknir vilja árétta mikilvægi þess að nemendur í leik- og grunnskólum halda áfram að sækja skóla þrátt fyrir takmarkanir á skólastarfi. 

Nauðsyn þess að hefta útbreiðslu COVID19 faraldursins er öllum ljós. Markmið aðgerða er að auka líkur á því að heilbrigðiskerfið geti sinnt þeim sem veikjast af COVID19 hér á landi ásamt því að geta sinnt annarri bráðaþjónustu. Að mati sóttvarnalæknis eru líkur á smiti frá ungum börnum töluvert ólíklegra en frá fullorðnum enda sýna rannsóknir hér á landi og á hinum norðurlöndum að smit hjá börnum er fátítt. Því má leiða líkum að því að ekki er tilefni til þess að takmarka skólastarf frekar í sóttvarnarskyni.  

Náið er fylgst með stöðunni og vilja landlæknir og sóttvarnalæknir koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri við skólastjórnendur, kennara og starfsfólk skóla og foreldra nemenda í leik- og grunnskólum:
  • Heilbrigð börn ættu að halda áfram að sækja sinn skóla. Námið er þeim mikilvægt, sem og sú virkni og aðhald sem því fylgir. 
  • Kennarar og starfsfólk skóla er framlínufólk í núverandi aðstæðum. Skólarnir eru mikilvægur hlekkur í okkar samfélagi og framlag skólasamfélagsins afar dýrmætt í því samhengi. Staðan er flókin og kallar á fjölbreyttar leiðir, úthald og sveigjanleika af hálfu allra
  • Kennarar og starfsfólk í áhættuhópum ættu að gæta fyllstu varúðar og skólar að fara eftir sínum viðbragðsáætlunum ef upp kemur grunur um smit. 

Undir þetta bréf til skólastjórnenda, kennara og foreldra skrifa Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir.