Skólasetning Grunnskóla Snæfellsbæjar

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur fimmtudaginn 22. ágúst 2019.

Fer skólasetning fram í sölum starfsstöðvanna og síðan hitta nemendur umsjónarkennara sína. Foreldrar og velunnarar skólans eru boðnir velkomnir.

Nemendur mæta:

Kl. 10:00 í 5. - 7. bekk í Ólafsvík (skólabíll fer frá Hellissandi kl. 9:40)

Kl. 11:00 í 8. - 10. bekk í Ólafsvík (skólabíll fer frá Hellissandi  kl. 10:40)

Kl. 12:00 í 2. - 4. bekk á Hellissandi (skólabíll fer frá Ólafsvík kl. 11:40)

Skólabíll leggur af stað frá skóla að loknum skólasetningum.

Kl. 14:00 í 1. - 10. bekk á Lýsu.

(þeir sem vilja nýta skólabíla hafi samband við skólabílstjóra).

Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl til umsjónarkennara.

Skóli hefst síðan samkvæmt stundarskrá föstudaginn 23. ágúst.

Nemendur og forráðamenn geta nálgast stundatöflur á Mentor.

Skólastjóri