Skólasetning Grunnskóla Snæfellsbæjar 22. ágúst 2022

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur mánudaginn 22. ágúst 2022.

Fer skólasetning fram í sölum starfsstöðvanna og síðan hitta nemendur umsjónarkennara sína.

Nemendur mæta:

Kl. 10:00 í 6. – 7. bekk í Ólafsvík (skólabíll fer frá Hellissandi kl. 9:40) Kl. 11:00 í 8. – 10. bekk í Ólafsvík (skólabíll fer frá Hellissandi  kl. 10:40) Kl. 12:00 í 2. – 5. bekk á Hellissandi (skólabíll fer frá Ólafsvík kl. 11:40)

Skólabíll leggur af stað frá skóla að loknum skólasetningum.

Kl. 14:00 í 1. – 10. bekk á Lýsu (þeir sem vilja nýta skólabíla hafi samband við skólabílstjóra)

Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl til umsjónarkennara, bréf þess efnis hafa verið send út.

Skóli hefst samkvæmt stundarskrá þriðjudaginn 23. ágúst.

Nemendur og forráðamenn geta nálgast stundatöflur á Mentor.

Skólastjóri