Snæfellsbær auglýsir starf garðyrkjufræðings laust til umsóknar
14.02.2020 |
Fréttir
Tæknideild Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í tímabundið starf við garðyrkju frá apríl nk. út september eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100% á starfstímanum.
Viðkomandi sér m.a. um að sinna öllum gróðri á opnum svæðum og lóðum stofnana sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:- Að skipuleggja verkefni í garðumhirðu og hreinsun opinna svæða
- Verkstjórn smærri garðyrkjuhópa vinnuskólans
- Aðstoð við þjálfun og fræðslu flokkstjóra er snýr að garðyrkju
- Klippingar, grisjun og útplöntun á trjám, runnum og sumarblómum
- Öll umhirða á beðum, bekkjum og blómakerum sveitarfélagsins
- Önnur tilfallandi verkefni er snúa að hreinsun og fegrun umhverfis sveitarfélagsins
- Menntun á sviði skrúðgarðyrkju, garðyrkju, skógfræði eða tengdum greinum er æskileg
- Reynsla af garðyrkjustörfum er skilyrði
- Reynsla af verkstjórn er kostur
- Frumkvæði, áræðni og röggsemi til verka
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reglusemi og stundvísi
- Almenn ökuréttindi
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.
Frekari upplýsingar veitir Davíð Viðarsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Snæfellsbæjar, í síma 433-6900 eða á david@snb.is. Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið david@snb.is. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.