Snæfellsbær auglýsir starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa laust til umsóknar
Snæfellsbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Snæfellsbæjar. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á íþrótta- og æskulýðsmálum, forvörnum og ungmennastarfi.
Við leitum að aðila með ríka skipulagshæfni og getu til að stjórna ásamt hæfileikum til að miðla upplýsingum á einfaldan hátt.
Við hvetjum alla, óháð kyni, til að sækja um starfið.
Hlutverk og ábyrgðarsvið:
- Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum í Snæfellsbæ.
- Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur umsjón með íþróttamannvirkjum í Snæfellsbæ, sér um starfsmannahald í íþróttahúsi, sundlaug og félagsmiðstöð, gerir fjárhagsáætlanir og sér um fjárhagslega umsýslu síns sviðs. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi sér jafnframt um skipulag og utanumhald hátíða á vegum Snæfellsbæjar í samvinnu við markaðs- og kynningarfulltrúa.
- Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi er starfsmaður íþrótta- og æskulýðsnefndar og ungmennaráðs og situr fundi beggja nefnda.
- Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi þarf að standa einstaka vaktir í íþróttahúsi og sundlaug ef þörf er á.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Æskilegt er að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hafi háskólamenntun sem nýtist í starfi, reynslu af sambærilegum verkefnum og reynslu af stjórnun verkefna og starfsmannahalds.
- Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund og góðum samskiptahæfileikum.
- Reynsla og þekking á stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er kostur, sem og góð almenn tölvukunnátta og tölvufærni.
- Frumkvæði og metnaður er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem allra fyrst, eigi síðar en 15. maí 2022.
Laun eru greidd skv. gildandi kjarasamningum.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsækjendur eru beðnir að tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni. Snæfellsbær áskilur sér rétt til að taka eða hafna öllum umsóknum.
Vinsamlega sendið umsóknir á neðangreind netföng. Öllum umsóknum verður svarað.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri: kristinn@snb.is Lilja Ólafardóttir, bæjarritari: lilja@snb.is