Snæfellsbær framlengir ríkulegan afslátt af gatnagerðargjöldum út árið 2025
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku að framlengja afslátt gatnagerðargjalda til loka árs 2025.
Afslátturinn nemur 90% af gatnagerðargjöldum íbúðarhúsnæðis í þéttbýli Snæfellsbæjar og 50% af gatnagerðargjöldum iðnaðarhúsnæðis í þéttbýli Snæfellsbæjar.
Afslátturinn tekur til allra lóða sem þegar eru tilbúnar til úthlutunar. Afslátturinn gildir til 31. desember 2025.
Lækkun gatnagerðargjalda felur í sér mikinn sparnað fyrir húsbyggjendur og standa vonir til að veittur afsláttur styðji við uppbyggingu á nýjum íbúðarhúsum og hvetji til áframhaldandi byggingarframkvæmda í þéttbýliskjörnunum þremur.
Hægt er að sjá lausar lóðir á kortavef Snæfellsbæjar:
Ath: það þarf að haka í reitinn „Lausar lóðir“ í valmyndinni til hægri á kortavefnum til að kalla fram lausar lóðir.