Snæfellsbær óskar eftir flokkstjórum unglingavinnu
30.04.2021 |
Fréttir
Snæfellsbær auglýsir tvö lifandi og skemmtileg störf fyrir einstaklinga sem hafa náð 25 ára aldri við umsjón og skipulag unglingavinnu í sumar.
Um er að ræða 100% störf frá 1. júní í tvo mánuði. Miðað er við starfslok 31. júlí, en vinnutími gæti verið lengri.
- Umsækjendur þurfa að vera 25 ára eða eldri.
- Umsækjendur þurfa að vera færir um að stýra hópum, hafa reynslu af og áhuga á að vinna með og fræða unglinga.
- Umsækjendur eru duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og dugmiklir.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.