Söfnun á landbúnaðarplasti í dreifbýli Snæfellsbæjar í janúar

Samkvæmt tilkynningu gerir Terra ráð fyrir að senda bíl í Staðarsveit og Breiðuvík laugardaginn 20. janúar og sunnudaginn 21. janúar nk. til að safna saman landbúnaðarplasti til endurvinnslu. Dagsetningar taka mið af veðri og vindum og geta tekið breytingum.

Landbúnaðarplast sem er notað utan um heyrúllur er úrvalsplast sem er tilvalið í endurvinnslu, en sé plastið ekki rétt flokkað eða óhreint er ekki hægt að endurvinna það og því er brýnt að flokka landbúnaðarplastið rétt og vandlega. Bændur hvattir til að tryggja gott aðgengi að plastinu.