Sorphirða á Hellissandi og Rifi tefst vegna veðurs

Sorphirða á Hellissandi og Rifi tefst um einn dag samkvæmt tilkynningu frá Gámaþjónustunni. Áætlað var að rusl skyldi hirt í dag. Það verður gert á morgun, miðvikudaginn 16. janúar. Ástæðan er slæmt veður.

Þá verður Gámastöðin einnig lokuð í dag. Verður næst opin á fimmtudag frá kl. 11:00 - 15:00.