Sorphirða tefst á Hellissandi og Rifi
21.11.2022 |
Fréttir
Uppfært fimmtudaginn 24. nóvember.
Því miður hefur ekki reynst mögulegt að hirða sorp skv. dagatali. Vonir standa til að sorphirða hefjist aftur á morgun, föstudaginn 25. nóvember.
Beðist er velvirðingar á þessari töf.
Terra umhverfisþjónusta
--
Seinkun verður á sorphirðu á Hellissandi og Rifi skv. tilkynningu frá Terra. Sorp verður hirt miðvikudaginn 23. nóvember.
Sorp í Snæfellsbæ er hirt u.þ.b. tvisvar í mánuði og er endurvinnslutunnan tæmd á sama tíma. Bæjarbúar eru eindregið hvattir til þess að flokka allt rusl og hafa gott aðgengi að tunnum.