Sóttvarnarreglur rýmkaðar á Dvalarheimilinu Jaðri á ný
03.11.2021 |
Fréttir
Nú hefur verið létt aftur á sóttvarnarreglunum sem tóku tímabundið gildi á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í upphafi síðustu viku.
Núgildandi reglur, frá og með 3. nóvember:
- Ótakmarkaður fjöldi gesta.
- Grímuskylda er áfram hjá gestum en munum eftir 1 metra reglunni.
- Staldra skal eins stutt við í sameiginlega rými okkar og hægt er.
- Tryggja handþvott áður en komið er inn á heimilið.
- Ekki þarf lengur að bjalla til að komast inn né skrá niður alla sem koma inn.
- Alls ekki koma ef þið eruð með einkenni sem gætu bent til COVID-19: Hósta, hálssærindi, mæði, niðurgang, uppköst, hita, höfuðverk, kviðverki, beinverki eða þreytu.