Starf sérfræðings í skólamálum - starf án staðsetningar
Sérfræðingurinn mun starfa ásamt skólamálafulltrúa, öðrum sérfræðingum sambandsins og fræðslumálanefnd, að margþættum og síbreytilegum verkefnum, sem einkum varða leik-, grunn- og tónlistarskóla, og vinna að hagsmunagæslu fyrir hönd sveitarfélaga á þeim sviðum.
Hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólapróf sem nýtist í starfi auk víðtækrar reynslu og þekkingar á fræðslumálum og áhuga á málefnum sveitarfélaga. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg. Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu öðru Norðurlandamáli og ensku er æskileg. Góð tölvuþekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga er skilyrði.
Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulagshæfileika.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Starf án staðsetningar
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Umsóknarfrestur til 22. nóvember
Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á lögfræði- og velferðarsviði“, berist eigi síðar en mánudaginn 22. nóvember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is.