Stofnfundur Matarklasa Snæfellsness
Fimmtudaginn 23. janúar n.k. verður stofnfundur Matarklasa Snæfellsness haldinn í Bæringsstofu í Grundarfirði. Hefst fundur kl. 15:00 og stendur til 17:00.
Eins og íbúar Snæfellsness vita vel þá er svæðið ríkt frá náttúrunnar hendi þegar kemur að mat og endurspeglast það í starfsemi á svæðinu - hér eru stöndug sjávarútvegsfyrirtæki, blómlegur landbúnaður og hágæða veitingastaðir sem bjóða upp á mat úr héraði. Þessi áhersla á mat kom einnig sterklega í ljós við gerð svæðisskipulags Snæfellsness og í vinnu við Svæðisgarðinn Snæfellsnes. Það er skýr vilji til að matvælaframleiðsla fari fram í beinum og nánum tengslum við náttúruna og með sjálfbæra nýtingu auðlinda að leiðarljósi. M.a. er lögð áhersla á nýsköpun, að aðgengi að snæfellsku hráefni og matvælum aukist og að þekking á matvælaframleiðslu og menningu og hefðum verði efld.
Á sama tíma og markmiðið er að gera Snæfellsnes að áfangastað fyrir sælkera þá er stefnan að auka aðgengi íbúana að snæfellsku hráefni.
Nú er komið að því að stofna Matarklasa Snæfellsness. Matarklasinn verður vettvangur fyrir samstarf í kringum þessi markmið og einnig tækifæri fyrir hagsmunaaðila að hittast, deila þekkingu og koma fram með hugmyndir um hvernig hægt er að efla og styrkja matartengda starfsemi á svæðinu.
Þannig að ef þú vinnur við frumframleiðslu á mat – hvort sem það er sjávarútvegur eða landbúnaður, rekur veitingastað, mötuneyti eða kaffihús, vinnur við matvælaframleiðslu á einn eða annan hátt, kennslu eða menningatengda starfsemi og/eða hefur mikinn áhuga á þessum málefnum þá endilega komdu á stofnfund matarklasans.
Ef þig vantar frekari upplýsingar ekki hika við að hafa samband: elin@snaefellsnes.is Dagskrá: 15:00-15:15 Kynning á matarverkefnum Svæðisgarðsins og framtíðarsýn 15:15-16:00 Umræður. Fundargestir fá tækifæri til að hafa áhrif á vinnuna framundan og stefnuna. 16:00-16:20 Kynning á Sælkeraferðum um Snæfellsnes, verkefni styrkt af Matarauði Íslands. Útskýrt verður fyrir hverja þetta verkefnið er ætlað og hvaða leikreglur verða hafðar til hliðsjónar við framkvæmd þessa verkefnis. 16:20- 16:45 Umræða um Sælkeraferðir. 16:45- 17:00 Næstu skref