Styrkir til samstarfsverkefna Íslendinga og Pólverja á sviði menningar

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til samstarfsverkefna Íslendinga og Pólverja á sviði menningar. Umsóknarfrestur er til 22. janúar 2021.

Styrkirnir eru veittir með framlagi frá uppbyggingarsjóði EFTA. Pólsk stjórnvöld leggja til 5 milljónir evra til samstarfsverkefnanna. Sótt er um styrkina til Póllands og leiðir pólski samstarfsaðilinn umsóknarferlið. Verkefnin þurfa að standa yfir í 12 - 24 mánuði og eru styrkir til verkefna á bilinu 100.000 - 500.000 evra. Samstarfið getur verið á öllum sviðum menningar, t.d. tónlistar, leiklistar, myndlistar, kvikmyndahátíða, bókmennta, safna, listmenntunar og menningararfs.

Fyrsta skref íslenskra umsækjenda er að tryggja pólskan samstarfsaðila.

Nánar á vefsíðu Rannís - Rannsóknarmiðstöðvar Íslands þar sem einnig má finna gagnabanka með mögulegum samstarfsaðilum í Póllandi. Ljósmynd frá Wrocław í Póllandi: Mihaela Holhos, Unsplash