Sumarstarf í Lýsulaugum
19.03.2019 |
Fréttir
Snæfellsbær óskar eftir að ráða starfsfólk í Lýsulaugar á Snæfellsnesi sumarið 2019.
Leitað er eftir starfsfólki á aldrinum 20 - 35 ára í laugarvörslu og afgreiðslu. Starfstími sem um ræðir er frá byrjun júnímánaðar til septembermánaðar.
Hæfniskröfur:- Góð enskukunnátta.
- Góð þjónustulund.
- Áræðanleiki.
- Áhugi á staðnum og nærumhverfi.
- Starfsmenn þurfa að ljúka skyndihjálparnámskeiði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.
Frekari upplýsingar fást í síma 696 1786 og á lysulaugar@snb.is. Vinsamlegast sendið umsóknir á lysulaugar@snb.is. Hér má sjá atvinnuauglýsingu og einnig má benda á að Lýsulaugar eru á Facebook. Sjá hér.