Sumarstarf í upplýsingamiðstöðinni

Snæfellsbær auglýsir til umsóknar tvö störf í upplýsingamiðstöð Snæfellsbæjar í Átthagastofu sumarið 2019.

Hæfniskröfur:
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
  • Góð þekking á svæðinu og nærumhverfi.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Góð tök á ensku og íslensku. Önnur tungumál eru kostur.
  • Stundvísi og jákvæðni.
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2019. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 15. maí og unnið út ágúst, jafnvel lengur.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.

Frekari upplýsingar veitir Rebekka Unnarsdóttir í síma 433 6929 og á rebekka@snb.is. Vinsamlegast sendið umsóknir á rebekka@snb.is.