Svæðisgarðurinn Snæfellsnes verði fyrirmynd fyrir önnur svæði á landinu

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes, hafa undirritað samning um stuðning við áframhaldandi þróun svæðisgarðs á Snæfellsnesi.

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes er samstarfsvettvangur sveitarfélaga og atvinnulífs á svæðinu og stuðlar að efnahagslegum, umhverfislegum og félagslegum ávinningi heimafólks á Snæfellsnesi.

Svæðisgarðurinn á sér evrópska fyrirmynd og er skilgreindur sem fjölþætt samstarf sveitarfélaga, fyrirtækja, félaga og samtaka á svæði sem myndar samstæða landslags- og menningarlega heild. Samstarfið byggist á sameiginlegri sýn um sérstöðu svæðisins og samtakamætti við hagnýtingu sérstöðunnar og verndun hennar.

Með samningnum er lögð áhersla á að unnið verði að því að draga fram ávinning af svæðisgörðum og hvernig svæðisgarðurinn á Snæfellsnesi geti nýst sem fyrirmynd fyrir önnur svæði á landinu. Við lok samnings liggur fyrir skýrsla um svæðisgarða og hvernig þeir geta stuðlað að jákvæðri byggðaþróun. 

Samningurinn er gerður með vísan í fjárlög fyrir árið 2021 þar sem veitt var 15 milljón króna framlag til svæðisgarðsins í því skyni að styrkja sameiginlega framtíðarsýn sveitarfélaga og fleiri aðila á svæðinu í tengslum við svæðisskipulag Snæfellsness. Jafnframt er vísað til  þingsályktunar nr. 24/148 um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024, þar sem sveitarfélög eru hvött til samstarfs um gerð svæðisskipulags til að marka sameiginlega stefnu um málefni sem varða sameiginlega hagsmuni.