Tækniþróunarsjóður heldur kynningarfund í Borgarnesi
26.08.2019 |
Fréttir
Tækniþróunarsjóður heldur kynningarfund í húsnæði Símenntunar við Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi fimmtudaginn 29. ágúst næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 12 og mun standa í um klukkustund.
Dagskrá:Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, fer yfir:
- Styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs
- Skattafrádrátt vegna rannsókna- og þróunarverkefna
- Nýsköpunarsjóð námsmanna
- Eurostars-2
Næsti umsóknarfrestur er til 16. september 2019.