Þrettándabrenna föstudaginn 6. janúar

Þrettándabrenna Lionsklúbbanna í Ólafsvík verður haldin á þrettándanum föstudaginn 6. janúar.

Á þrettándanum kl. 18:00 verður gengið frá Pakkhúsinu að brennu rétt innan við félagsheimilið á Klifi. Gengið verður í fylgd álfadrottningar, álfakóngs, álfameyja og púka auk mennskra manna. Við brennuna verður flugeldasýning.

Íbúar Snæfellsbæjar og nærsveita eru hvattir til að mæta í gönguna og taka þátt í að kveðja jólin.