Tilkynning vegna Kórónaveirunnar og umgengni við íbúa á Jaðri

Íbúar Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars eru flestir aldraðir og/eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma. Þeir eru því í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni. Við viljum því biðja þá sem eru með kvefeinkenni, flensulík einkenni eða hafa ferðast nýlega til skilgreindra áhættusvæða samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis að gæta varúðar og koma ekki í heimsóknir á Jaðar. 

Einnig er mikilvægt að þeir sem eru frískir, hafa ekki verið á skilgreindum áhættusvæðum og hafa því ekki ástæðu til að ætla að þeir hafi smitasta af veirunni hafi eftirfarandi í huga:

  • Handþvottur er mikilvægasta ráðið til að forðast smit og einnig er mikilvægt að nota handspritt. Hafið þetta alltaf í huga þegar komið er inn á heimilið.
  • Forðist alla líkamlega snertingu eins og hægt er svo sem handabönd, faðmlög og kossa við íbúa.
  • Forðist að koma við snertifleti í almennum rýmum svo sem handriði og hurðarhúna.

Við bendum ykkur á að kynna ykkur leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins því staða mála og leiðbeiningar þeim tengdar geta breyst dag frá degi.