Tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 15. apríl
14.04.2021 |
Fréttir, Covid-19
COVID-19: Tilslakanir á samkomutakmörkunum og í skólastarfi frá 15. apríl
Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólastigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný. Þetta er megininntak tilslakana á sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.
Sjá tilkynningu á vef StjórnarráðsinsHelstu breytingar í Snæfellsbæ:
- Sundlaug Snæfellsbæjar opnar að nýju, hámark 35 gestir í senn.
- Íþróttastarf hefst að nýju í íþróttahúsi.
- Æfingar hjá UMF Víking/Reyni hefjast skv. æfingatöflu.
- Leikskóli Snæfellsbæjar opnar dyr fyrir foreldrum á ný.
- Grunnskóli Snæfellsbæjar starfar áfram eftir óbreyttu fyrirkomulagi hvað nemendur og forráðamenn varðar.
- Tónlistarskóli starfar áfram eftir óbreyttu fyrirkomulagi.
- Bókasafn áfram opið á opnunartíma.