Tjaldsvæði Snæfellsbæjar hafa opnað fyrir sumarið

Tjaldsvæðin í Ólafsvík og á Hellissandi hafa opnað fyrir sumarið 2023.

Tjaldsvæðin hafa verið vinsæl síðustu ár og hefur Snæfellsbær leitast eftir því að bæta sífellt þá aðstöðu og þjónustu sem finna má á tjaldsvæðunum. 

Á tjaldsvæðunum má finna eftirfarandi þjónustur:
  • Klósett (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Sturta (aðgengi fyrir fatlaða í Ólafsvík)
  • Heitt og kalt vatn
  • Eldunaraðstaða
  • Vaskarými
  • Úrgangslosun
  • Rafmagn/rafmagnstenglar
  • Internet
  • Frisbígolfvöll
  • Leikvellir fyrir börn
  • Þjóðgarðsmiðstöð með aðgengi að klósettum allan sólarhringinn og upplýsingagjöf og þjónustu á opnunartíma (á Hellissandi)

Umsjón með tjaldsvæðum hafa Patrick Roloff og Rebekka Unnarsdóttir. Hægt er að hafa samband við þau í síma 844–6929.

Hér má sjá gjaldskrá fyrir sumarið 2023.