Tónlistarskóli Snæfellsbæjar í sjónvarpsþættinum Netnótunni á N4

Á Íslandi eru tæplega 90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Þættirnir verða sýndir á N4 en þar gefst kostur á að skyggnast inn í starfsemi tónlistarskólanna, grasrót tónlistarsköpunar í landinu.

Frá árinu 2010 hefur Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins, verið haldin árlega með pompi og prakt. Árið 2020 átti hátíðin 10 ára afmæli en lítið varð úr hátíðarhöldum vegna Covid. Í ljósi aðstæðna brugðust tónlistarskólar landsins við með síma og Ipada að vopni og tóku upp eigin tónlistaratriði. Saman eru þessi myndbönd orðin að Netnótunni, þriggja þátta sjónvarpsseríu sem sýnd verður á N4.

Fyrsti þáttur fer í loftið  þann 13. júní og kemur Tónlistarskóli Snæfellsbæjar við sögu í honum.

Í þáttunum eru myndbönd sem hver þátttökuskóli útbjó heima í héraði púslað saman og sér leikarinn Vilhjálmur Bragason um að kynna atriðin. Eins og sést í Netnótunni þá er starf tónlistarskólanna mjög fjölbreytt, tónlistarnemendur eru á öllum aldri og á öllum stigum tónlistarnámsins.

Myndböndin birtast á vefsíðu KÍ og FB síðu Nótunnar á sama tíma og hver sjónvarpsþáttur er sýndur, auk þess sem þau verða aðgengileg á heimasíðu N4 og í N4 safninu í  Sjónvarpi Símans.

Hér má sjá stiklu úr þáttunum.