Um áramót - nýárspistill bæjarstjóra

Um áramót

Hér má lesa nýárspistil bæjarstjóra, en hann birtist að vanda í fyrsta tölublaði ársins af bæjarblaðinu Jökli.

Árið í hnotskurn

Það jákvæðasta við árið 2022 að mínu mati er sú staðreynd að við fengum frelsið okkar aftur eftir að hafa verið í glímu við COVID síðustu tvö árin.  Eðlileg samskipti og samvera fólks er nærandi og okkur öllum mikilvæg.  Þó við gerum okkur grein fyrir því að veiran er ekki farin og að enn er mikilvægt að fara varlega þá erum við samt frelsinu fegin.

Það óvæntasta og jafnframt það neikvæðasta á árinu 2022 er sú staðreynd að nú geisar stríð í Evrópu eftir innrás Rússlands í Úkraínu.  Saga stríða og þeirra hörmunga sem þau skapa er skelfileg og það er hálf óraunverulegt að fylgjast með fréttum af slíku í Evrópu í nútímanum. Það að fólk hafi ekki aðgang að vatni, ljósi eða hita í miklum kuldum er hræðilegt og afar dapurt að mikið kapp sé lagt að eyðileggja innviði landsins svo ekki sé nú talað um alla þá sem hafa látist í þessum hörmungum.

Ein skrítnasta upplifunin á árinu var stuldurinn á styttunni af Guðríði Þorbjarnadóttur sem stendur við Laugabrekku á  Hellnum. Mikil fjölmiðlaumfjöllun fylgdi í kjölfar þjófnaðarins og var ég glaður með að flestir áttuðu sig á því að það getur aldrei verið réttlætanlegt að stela jafnvel þó að það sé gert í listrænum tilgangi. Styttan kom aftur heim en ekki er búið að refsa þjófunum þegar þetta er skrifað og er það mál í vinnslu.

Þjóðgarðurinn

Framkvæmdir við þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi gengu vel á árinu og lauk framkvæmdum við húsið nú á haustmánuðum.  Bílastæðið við húsið var einnig malbikað og lokafrágangur við það verður á þessu ári.  Það er enginn vafi á því að með tilkomu þessa glæsilega húss þá mun starfsemi þjóðgarðsins eflast enn frekar næstu árin.  Starfsmönnum mun fjölga við þjóðgarðinn og fyrirhugað er að setja upp sýningu í húsinu sem eflaust mun draga að sér fjölda fólks.  Því má segja að þjóðgarðurinn sé og verði eitt af okkar flaggskipum hér á Snæfellsnesi.  Tækifærin sem skapast með allri þeirri uppbyggingu sem er innan þjóðgarðsins mun styrkja svæðið okkar. Þjóðgarðsráð var stofnað á árinu og sitja sex einstaklingar í því en ráðinu er ætlað að starfa með Umhverfisstofnun sem fer með stjórn þjóðgarðsins og bind ég miklar vonir við störf ráðsins.

Vonbrigði ársins

Ein mestu vonbrigði ársins var lokun útibús Hafró í Ólafsvík nú um áramót. Bæjarstjórn fundaði með forstjóra Hafró, alþingismönnum, ráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins en allt kom fyrir ekki Hafró skellti í lás 31.12.2022.  Það er óþolandi að þurfa að sætta sig við þetta, sérstaklega í ljósi þess að í tali er verið að leggja áherslu á að fjölga opinberum störfum úti á landi en því miður fer ekki alltaf saman hljóð og mynd hvað þetta varðar.

Kosningar

Á síðastliðnu ári voru sveitastjórnarkosningar og var ný bæjarstjórn kosin í Snæfellsbæ í maí.  Ekki urðu miklar mannabreytingar í bæjarstjórn, en það komu 2 nýir bæjarfulltrúar til starfa eftir kosningar.  Undirritaður var síðan ráðinn áfram til að gegna stöðu bæjarstjóra og er þetta 7 kjörtímabilið sem er að hefjast.  Það er ekki sjálfsagt að vera treyst til að stýra bæjarfélaginu þetta lengi.  Fer ég í það verkefni af auðmýkt og tilhlökkun. Verkefni samfélags eins og Snæfellsbæjar eru óþrjótandi og margt spennandi er framundan næstu árin, okkar sem samfélags er að nýta þau tækifæri sem skapast.

Hátíðarhöld

Á árinu var Sandara- og Rifsaragleðin haldin og tókst hún með miklum ágætum og alltaf gaman þegar fólk hittist og á góða daga.

Snæfellsbær var gestgjafi hátíðarinnar Hinsegin Vesturland síðastliðið sumar.  Mikið var lagt í undirbúninginn og hátíðina sjálfa.  M.a. var málaður stór og fallegur regnbogi fyrir neðan kirkjuna í Ólafsvík sem hefur vakið verðskuldaða athygli og ætlum við að hafa hann áfram næstu árin a.m.k..  Gaman var að sjá hversu margir bæjarbúar tóku þátt í hátíðinni sem tókst  frábærlega.

Umhverfismál

Umhverfismálin eru okkur Snæfellingum alltaf ofarlega í huga.   Á árinu fór mikil vinna fram á vegum Svæðisgarðsins í umhverfismálin.  Stefnt er að  umsókn um að Snæfellsnes verði Unesco MAB svæði.  Ef okkur tekst að fá vottun tel ég að það muni hafa  mikil og góð áhrif á  svæðið og  mikil viðurkenning  á  starfi okkar Snæfellinga að umhverfismálum.

Framkvæmdir í bæjarfélaginu

Eins og undanfarin ár var töluvert um framkvæmdir í Snæfellsbæ bæði á vegum sveitarfélagsins  og annarra aðila og ætla ég að fara yfir þær hér að neðan.

Segja má að höfuðáherslan í framkvæmdum ársins hafi verið viðhaldsframkvæmdir  á eignum sveitarfélagsins.  Ekki tókst þó að framkvæma allt það sem átti að framkvæma á árinu sökum skorts á fagmönnum til verka.  Á nýju ári bindum við vonir við að okkur gangi betur að fá verktaka í verkefnin.

Ánægjulegt var að fylgjast með byggingu fjölda íbúðahúsa í Snæfellsbæ bæði á vegum einstaklinga og annarra. Snæfellsbær á lítinn hlut í Snældu sem er að byggja 6 íbúðir á Hellissandi sem gert er ráð fyrir að verði tilbúnar snemma þessa árs og verða seldar á almennum markaði.  Það skiptir miklu máli fyrir okkur að nægt framboð sé á húsnæði í bæjarfélaginu til að við getum tekið á móti fólki sem vill flytja til okkar.

Bæjarstjórn tók þá ákvörðun síðla sumars að festa kaup á nokkrum húsum fyrir hina ýmsu starfsemi í Snæfellsbæ.  M.a. var keypt hús sem á að hýsa starfsemi eldri borgara í Snæfellsbæ, húsið er um 500 m2 að stærð og á eftir að nýtast starfseminni vel.  Annað hús verður síðan reist á Lýsuhóli sem verður um 200 m2 að stærð og á að bæta aðstöðuna fyrir leik og grunnskólann.

Lokið var við tvö stór verkefni á ferðamannastöðum á árinu en styrkur fékkst til þeirra frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, annar styrkurinn var til að bæta aðgengi að Svöðufossi og hinn til að bæta aðgengi við styttuna af Bárði-Snæfellsás.  Óhætt er að segja að þessi verkefni hafi tekist ákaflega vel og er mikil ánægja með þau.  Verkefnið á Arnarstapa er liður í mun stærri framkvæmd sem vonandi verður hægt að fara í á næstu árum.

Lokið var við framkvæmdir við vallarhúsið á fótboltavellinum í Ólafsvík og þakið á byggingu tónlistarskólans á Hellissandi var endurnýjað. Töluverðar framkvæmdir voru við grunnskóladeildina á Hellissandi, skipt var um dúk á stofu, inngangurinn endurnýjaður og aðgengi að skólanum bætt til muna.  Keyptir voru nýir gluggar í allt húsið og byrjað var á að skipta út gluggum í skólanum og vonandi tekst okkur að ljúka því verkefni á þessu ári.  Húsið var allt þvegið að utan og farið í múrviðgerðir, í ár verður húsið síðan málað.  Farið var í framkvæmdir við lóð leikskólans á Hellissandi, girðing endurnýjuð að hluta og leiktæki máluð. Skipt var um gólfdúka í tveimur stofum í grunnskólanum í Ólafsvík ásamt því að stofurnar voru málaðar.

Haldið var áfram við að endurnýja ljósabúnað í götuljósum sveitarfélagsins en það mun taka nokkur ár.  Verkið felst í því að skipta út eldri ljósum og setja upp mun sparneytnari led lýsingu.  Þetta er enn einn liðurinn hjá sveitarfélaginu í orkusparnaði.

Framkvæmdir hafnarsjóðs

Árið var gott hjá Hafnarsjóði Snæfellsbæjar og þar var landað  tæpum 40.000 tonnum sem er með því mesta sem landað hefur verið.  Einnig var fiskverð mjög gott sem skilaði sér í góðum tekjum fyrir höfnina.

Á vegum Hafnarsjóðs voru helstu verkefni að rekið var niður nýtt stálþil við Norðurtanga í Ólafsvík og þekja steypt. Nýtt masturshús á Norðurgarði var byggt og rafmagn endurnýjað.  Það verkefni er hluti af stærra verkefni sem er orkuskipti í höfnum á íslandi.  Hafnarhús í Ólafsvík klætt að utan og unnið að stækkun þess.

Í Rifshöfn var unnið við umhverfismál við uppsátur, þökulagningu og gangstétt.  Byrjað var á dýpkun í innsiglingunni í haust en því miður sökk dýpkunarpraminn þannig að ekki er búið að klára það verk.  Vonum við að það verkefni klárist á þessu ári.

Hluti af vefmyndavélum voru endurnýjaðar í höfnunum og hluti af fríholtum í höfnunum var endurnýjaður, gangstéttar voru steyptar og götulýsing var sett upp við Snoppuveg.

Listir og menning

Snæfellsbær tók þátt í afar skemmtilegu verkefni á Hellissandi,  þar var sett upp listaverk sem ber nafnið Frelsisvitinn eftir þýska högglistamanninn Jo Kley en Lionsklúbbur Nesþinga sá um að fjármagna verkefnið sem unnið var í Saltportinu hjá Steingerði og Árna.  Þetta fallega listaverk stendur neðst við Höskuldsána og er mikil prýði fyrir svæðið.

Ferðaþjónusta

Mikil fjöldi ferðamanna kom í Snæfellsbæ á árinu og er gestafjöldinn að nálgast það sem áður var.  Tjaldsvæðin okkar voru mikið notuð og komu tæplega 17.000 gestir á þau á liðnu ári sem er örlítið meira en árið 2019.

Hótel Búðir hófu stækkun á hótelinu sem á að ljúka um mitt  ár 2023.  Þetta verður mikil breyting fyrir starfsemina og eftir stækkun verður hægt að taka á móti mun stærri hópum en áður.

Búsetukjarninn

Á árinu var tekinn  í notkun glæsilegur 5 íbúða búsetukjarni í Ólafsvík fyrir íbúa með fötlun   Þetta er stór áfangi hjá okkur að vera komin með þetta frábæra hús en slíkt var ekki til áður hjá okkur.

Fjármál og fleira

Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar er góð og voru engin ný langtímalán tekin á árinu sem er mjög ánægjulegt,  verðbólgan setti þó nokkuð strik í reikninginn hvað  varðar fjármagnsútgjöld.

Oft hefur okkur gengið betur á sviði íþróttanna en á árinu 2022.  Þó er það eftirtektarvert að unga fólkið okkar er að standa sig afar vel og við eigum nokkrar konur í landsliðum Íslands sem ég er afar stoltur af. 

Kosið var um sameiningu  Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar þann 19. febrúar s.l..  Íbúar Snæfellsbæjar samþykktu sameininguna en íbúar Eyja- og Miklaholtshrepps felldu sameininguna, þannig að ekkert varð úr sameiningu sveitarfélaganna.

Í lok ársins dó Benedikt XVI páfi, en hann hitti ég ásamt góðu fólki af Snæfellsnesi í Páfagarði 2011.  Það var mjög mikil lífsreynsla að koma í Páfagarð á sínum tíma og sjá alla dýrðina og jafnframt að hitta páfann.  Stuttu eftir að við heimsóttum hann, lét hann af embætti og setti í helgan stein, annar páfinn sem hafði gert það í sögunni

Á persónulegum nótum

Af sjálfum mér þá var árið ágætt og gott var að geta átt meiri samskipti við fólk eftir tvö ár af samkomutakmörkunum. Dóttir mín hún Thelma náði stórum áfanga í sínu lífi er hún útskrifaðist sem læknir frá Háskóla Íslands í vor.  Það er alltaf ánægjulegt þegar fólk nær markmiðum sínum í lífinu.    Ég naut þess að hreyfa mig á árinu eins og undanfarin ár og er alltaf sannfærðari um mikilvægi þess að hreyfa sig eins mikið og kostur er.   Naut þess með góðum vinum að sinna kindunum mínum sem hefur fjölgað umfram það sem stóð til. Fór nokkrar smalaferðir um okkar fallega svæði í haust, þetta árið voru kindurnar frekar á því að vilja vera til fjalla enda tíðafarið einstaklega gott.  Það sem jafnframt er skemmtilegt við þetta smalastúss er að maður kynnist fjöldanum öllum af skemmtilegu fólki og fær eins og áður segir góða hreyfingu og náttúruupplifun.   Ég naut líka samvista með fjölskyldunni og vinum á árinu og þær gæðastundir skipta  alltaf miklu máli.

Samstarf innan bæjarstjórnar var afar gott eins og undanfarin ár og mikil samstaða um þau stóru verkefni sem fyrir lágu á árinu.  Starfsmenn Snæfellsbæjar sig hafa staðið sig  með miklum ágætum á árinu og erum við heppin að hafa á að skipa afar hæfum starfsmönnum sem skilar sér í góðum rekstri sveitarfélagsins.

Að lokum óska ég ykkur öllum gleðilegs árs og þakka samstarfið á liðnum árum. Megi árið 2023 verða okkur öllum farsælt.

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.