Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum í tímabundin störf í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul
Starfsemin fer annars vegar fram í þjóðgarðinum, á utanverðu Snæfellsnesi, á gestastofu á Malarrifi, ströndinni við Stapa og Hellna ásamt Búðahrauni og hins vegar á friðlýstum svæðum á Vesturlandi, í Akraneskaupstað, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp. Umsækjendur eru beðnir að forgangsraða í umsókn á hvoru svæðinu þeir óska heldur að starfa á.
Landverðir hjá Umhverfisstofnun fá þjálfun í upphafi starfstímans og kynningu á svæðinu sem starfað verður á. Sameiginleg móttaka allra sumarlandvarða verður haldin 20. maí klukkan 13-17 og gert er ráð fyrir þátttöku allra.
Helstu verkefni og ábyrgð:- Umsjón og eftirlit með starfssvæðum
- Gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða sé fylgt
- Móttaka gesta á gestastofunni á Malarrifi (landverðir í þjóðgarðinum)
- Upplýsa og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, m.a. með fræðslugöngum
- Sinna viðhaldi innviða og halda við merktum gönguleiðum
- Bregðast við ef slys ber að höndum
- Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
- Gild ökuréttindi er krafa
- Gild skyndihjálparréttindi er krafa. Boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor
- Góð færni í samskiptum er mikilvæg
- Reynsla af landvörslustörfum er kostur
- Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
- Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta kostur
- Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2022
Nánari upplýsingar veitir Jón Björnsson - jonb@umhverfisstofnun.is - 5912000 Þórhildur María Kristinsdóttir - thorhildur.kristinsdottir@umhverfisstofnun.is - 5912000 Nánari upplýsingar á vef Stjórnarráðsins - smella hér.